Hljóðskrár í Word og Power Point
Ég hef svolítið unnið með nemendum sem eru t.d. lesblindir og geta því ekki nálgast námsefnið á sama hátt og þeir sem eru það ekki. Við kennarar erum alltaf að leita leiða til að námið nýtist nemendum og að þeir hafi gaman af því. Við þurfum að hugsa útfyrir kassann og nýta fleiri aðferðir svo að sem flestir fái að njóta sín.
Ég hef farið í nokkur ár á Bett-ráðstefnuna í London. Þar er hafsjór af fróðleik til að taka með heim. Eitt af því sem ég kynntist þar er hvernig hægt er að nota Power Point á skemmtilegan hátt með nemendum.
Ég hef farið í nokkur ár á Bett-ráðstefnuna í London. Þar er hafsjór af fróðleik til að taka með heim. Eitt af því sem ég kynntist þar er hvernig hægt er að nota Power Point á skemmtilegan hátt með nemendum.
Það ár var ég með hóp nemanda sem ég fékk að prufa ýmsa skemmtilega nýja hluti með og til þess að þetta væri nú markvisst fékk ég ensku kennarann í lið með mér. Óreglulegar sagnir eru oft erfiðar svo mig langaði til að prófa hvort við gætum notað margmiðlun í Power Point til að vinna með sagnirnar. Sögnunum var skipt á milli nemenda og fyrirmælin voru að setja þær inn í öllum tíðum á íslensku og ensku, setja inn hljóðskrár og fela þær, láta sagnirnar birtast með réttu hljóði, finna viðeigandi myndir, búa til setningar á báðum tungumálum og setja innkomur og útkomur á allt. Þegar þessu var lokið var þetta sett í eina stóra kynningu, brennt á disk og þau fengu þetta í jólagjöf. Í stuttu máli þá lærðu þau öll allar óreglulegu sagnirnar og kennarinn sem var með þau önnina á eftir notaði síðan diskinn með þeim til upprifjunar.
Ég hef einnig prófað þessa aðferð með nemendum í íslenskri málfræði með góðum árangri.
|
Þegar nemendur eiga erfitt með að lesa og skrifa svör í verkefnum eða prófum, er hægt að nota mjög einfalda en áhrifaríka aðferð sem er einfaldlega að tala inná Word skjal og skila því síðan rafrænt. Nemandi hlustar á fyrirmælin og svarar með hljóðskrá. Við höfum notað þetta svolítið í Fjölbrautaskóla Suðurnesja með góðum árangri og eru dæmi um að nemandi hafi hækkað sig verulega í einkunnum og tekið gleði sína eftir margra ára hryggð í skólakerfinu.
Nemendur hafa einnig gaman af því að skrifa verkefnið sitt í Word, setja inn hljóðskrá, teikna viðeigandi mynd í teikniforriti s.s. Paint til að myndskreyta verkefnið. Með Windows fylgir smáforrit sem kallast Sound recorder sem þægilegt er að nota. Hér á eftir eru leiðbeiningar og nokkur dæmi frá nemendum.
|