Educreations
er skemmtilegt app sem er bæði hægt að nota í Ipad og á vefsíðu Educreations. Kennarar hafa mikið notað þetta smáforrit til að útbúa kennslumyndbönd sem nemendur geta spilað aftur og aftur og undirbúið sig fyrir kennslustund - svokölluð spegluð kennsla. Nemendur geta einnig notað forritið til að vinna skilaverkefni sín á skemmtilegri hátt og síðan skilað til kennara á ákveðið svæði sem kennari býr til á Educreations. Nemendur geta þá tekið upp verkefnið sitt og unnið það aftur og aftur þar til þeir eru ánægðir með útkomuna. Í raun eru náms- og kennslumöguleikarnir óendanlegir og ánægjulegir.
Ég fékk barnabörnin mín í lið með mér til að sýna nokkur dæmi um hvernig er hægt að nota þetta. Í öllum þessum dæmum er um fyrstu upptöku að ræða.
Einnig eru hér dæmi frá mér og nokkrum kennurum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Dagmar Njarðardóttir 8 ára - dæmi um lestur og skrift
|
Dagur Stefán 6 ára parar saman orð og mynd |
Dagur Stefán dregur til stafs.
Myndskeið í Excel fyrir nemendur
Dæmi um APA heimildaskráningu
Ívar Valbergsson - dæmi úr kennslu í vélstjórn
Ingigerður Sæmundsdóttir - dæmi úr íslensku og stærðfræði